Saga
Distica hóf starfsemi 1. janúar 2007. Félagið varð til við skiptingu Vistor hf. í tvö félög en starfsemin var áður rekin sem innkaupa- og dreifingardeild innan Vistor.
Fyrirtækið á sér þó rúmlega 60 ára sögu því rætur þess má rekja allt aftur til ársins 1956 þegar sjö apótekarar tóku sig saman um að koma á umbótum í lyfsölumálum landsmanna og stofnuðu innkaupasamband apótekara, Pharmaco hf.
Þetta var á tímum hafta- og skömmtunarstefnu í efnahagsmálum á Íslandi. Sérstök leyfi þurfti til fjárfestinga og innflutningur var háður gjaldeyris- og innflutningsleyfum. Vöruskortur var almennur og svo var einnig í lyfjaverslunum. Ástandið var óviðunandi og því stofnuðu lyfsalar innkaupasamband apótekara til að svara brýnni þörf og tryggja með markvissum hætti framboð á lyfjum alls staðar á landinu.
Stiklað á stóru í sögu fyrirtækisins:
1956
Pharmaco hf. stofnað af sjö apótekurum til að markaðssetja og dreifa lyfjum.
1960
Pharmaco hf. hefur framleiðslu lögbókarlyfja.
1981
Delta hf. stofnað til að sinna framleiðslu.
1992
Eignarhluti Pharmaco í Delta seldur.
1993
Endurskipulagning á starfsemi Pharmaco hf. með áherslu á heildsölu og dreifingu á lyfjum, lækningatækjum, hjúkrunarvörum og snyrtivörum.
1997
Dreifingarstarfsemin hlýtur ISO 9001 gæðavottun.
2000
Pharmaco hf. sameinast Balkanpharma í Búlgaríu.
2002
Pharmaco Ísland ehf. stofnað og selt Veritas Capital hf. Pharmaco Ísland verður PharmaNor hf. og stofnar dótturfélag utan um snyrti- og neytendavörur. Dótturfélagið fær nafnið CosNor.
2004
Dótturfélagið CosNor selt.
2005
Nafnabreyting 10. janúar, PharmaNor fær nafnið Vistor hf.
2006
Stofnun Distica undirbúin – innkaup, vöruhúsarekstur og dreifing klofin út úr Vistor.
2007
Starfsemi Vistor skipt upp í tvö félög þann 1. janúar:
- Distica, sem sér um innflutning, vörustjórnun, móttöku pantana og dreifingu til viðskiptavina fyrir umbjóðendur sína.
- Vistor, sem sér um sölu- og markaðsstarf ásamt lyfjaskráningu.
- Bæði félögin eru að fullu í eigu Veritas Capital hf.
- Afgreiðsla á öðrum vörum en lyfjum flyst í nýtt 2.000 m2 vöruhús í Suðurhrauni.
2008
Veritas Capital gert að virku móðurfélagi í janúar og fjármála- og stoðsvið flutt þangað. Distica kaupir alla stoðþjónustu af móðurfélaginu.
2009
Nýr kæliklefi fyrir kælivörur tekinn í notkun í maí.
2010
Manhattan SCALE vöruhúsakerfi innleitt í vöruhúsinu í Suðurhrauni.
2011
Manhattan SCALE vöruhúsakerfi innleitt í lyfjavöruhúsinu í Hörgatúni.
2012
- Rafrænt endursendingakerfi (ES) innleitt í mars.
- Upplýsingagátt Distica hönnuð og innleidd.
- Ný skrifstofubygging í Hörgatúni tekin í notkun.
2013
- Vöruhús Distica í Suðurhrauni fær ISO vottun.
- Distica er Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo.
- Endurbótum á lyfjavöruhúsinu í Hörgatúni lokið. Með 1.300 m2 viðbyggingu telur vöruhúsið 3.500 m2 og er eitt
fullkomnasta vöruhús landsins. - Innleiðing á Navision upplýsingakerfi.
2014
Distica er Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo.
2015
- Manhattan SCALE uppfært.
- Innleiðing á LEAN aðferðafræðinni hefst.
- Distica er Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo.
2016
Distica er framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo.
2019
- Microsoft Dynamics NAV uppfært í útgáfu 2017.
- Ný heimasíða Distica í loftið.
2020
- Nýr framkvæmdastjóri Distica tekur til starfa.
- Distica hefur eigin dreifingu á höfuðborgarsvæðinu.
- Nýtt vöruhús Distica í Miðhrauni tekið í notkun.
- Mínar síður og uppfærður vefur Distica í loftið.
2021
- Vefverslun fór í loftið
- Vefspjall tekið í notkun
- Nýtt endursendingakerfi
- Dreifing á Covid bóluefnum
2022
- Gamla Apótekið í dreifingu hjá Distica
- Frímann - Stafrænt vinnuafl tekið í notkun
2023
- Saga Natura kom í dreifingu til Distica
- Stækkun á lyfjakæli í Hörgatúni
- Kassabílar bættust í dreifinguna
2024
- Nýtt vöruhús Distica í Suðurhrauni tekið í notkun.